Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Nokkur lög sem ég get hlustað á aftur&aftur!






hætt :)

29. september 2008 klukkan 14:43

Litla krúúútið mitt;*

07. júní 2008 klukkan 19:55

Byrjuð að vinna á fullu og sumarið lítur út fyrir að eiga eftir að líða hratt.
Næstu helgar allar bókaðar og nánast dagar. Svo mér er farið að líða aftur ögn betur haha, það var bara eitthvað bogið við að vera svona óskipulagður eftir að skólinn kláraðist haha;) Datt bara í leti haha;) náttföt og sjónvarpsgláp ;) Ei slæmt samt svo sem, öðru hverju.

Það stærsta framundan hjá mér núna er svo:
8. júní - ríð vonandi heim með Stroku mína ;) Það verður ákveðinn léttir svo lengi sem ég kemst heil heim haha;)
12. júní - James Blunt beibííí - sæluferð með Sólrúnu - fram og til baka til að hlusta á sykursæta rödd drengsins;*
14. júní - kvikindið og töffarinn bróðir minn fermist;* Ættin stromar norður með tilheyrandi prógrammi og gleði;D
15. júní - Kúúbenhagen here I come;* Svo förum við til Sweeden nótina eftir það :) Það verður eflaust tekið á því;) Ætla allavega að reyna að skemmta mér bara sem allra mest :D úje

Síðustu daga hef ég samt bara verið ein af strákunum haha. Skelltum okkur á Ak á fimmtudagskvöldið og svo var potturinn tekinn með tropmi í gær. Hef aldrei fengið jafn mikla rúsínuputta - en þetta var bara gaman;) ..og æðislegt veður. Afhverju getur ekki verð svona kyrrt á daginn líka!

Haha í gær var ég svo að vinna á tónleikunum í göngunum. Ég var vinsæla stelpan í gulavestinu með rauða hjálminn, merkt Landsvirkjun í bak og fyrir - eltandi fólk upp og niður gönginn til að skella hjálmum á kollinn á þeim þessa fáu metra sem var hjálmaskilda;) haha
Svo glömmruðum við á marimba þarna - og flestum fannst það gaman nema ,,Stop-gaurinn" haha;)
Kórinn frá Flensborg var æðislegur bara eins og svo sem allir hinir! - Gaman af þessu krakkar mínir;)

Við Svala höfum átt góða spretti síðustu daga;* Rúnturinn á Húsavík hefur verið tekinn í gegn og hesthúsahverfið haha, lítilega;) 
Átti svo bara æðislegt kvöld með Ástu um daginn og verð að fara að hitta hana sem fyrst aftur núna svo ég neyðist ekki til að kjafta af mér allt vit! Get svo sem allveg hitt Einar speking líka ;* ;) haha  þarf eginlega að ræða við hann betur um þessar sniiilllldar hugmynd;)

Fór í blíðunni í gær og kíkti á Dögun mína og Hnotu. Hér eru sumarlegar og sætar myndir;)




Eitthvað að skoða mig haha


..og komast af því að ég væri kannski ekki neitt alslæm..;)


..en samt öruggara að láta mig aðeins vita af sér sko;)


Me like!! - ef þetta eru ekki takktar... :D

...æ-i krúttið mitt!




Sætu mínar;*

Farvel, litlu sykurkorn, farvel;*






já,krakkar mínir;)

25. maí 2008 klukkan 01:29

Það hefur vottað fyrir Júró-fílingi síðustu daga;)
..hélt þó aldrei að við værum eitthvað að fara að taka þetta, en gaman að velta þessum lögum smá fyrir sér.

Átti góðan dag bara. Við Sólrún skelltum okkur á hestbak á Laugum. Hún er yndi, svo þetta var yndislegt haha;) Svo tók bara Eurovision-partý við. Við Sólrún and familíí höfðum það kósý. Bragðaði m.a. afbragðs pasta og eftirrétt merkann. Borðaði svo of mikið af hnetum...hehe ... Er það eitthvað nýtt, svo sem ;S Allavega ekki ræða það mál við Þóru haha....

En keppnin í kvöld var í heildina bara nokkuð góð og spennandi. Verð að viðurkenna að mér datt samt eginlega ekki í hug að Rússland væri að fara að vinna þetta, þar sem mér fannst hreynlega Dima Bilan vera með svo mikið betra lag 2006 ;) Bara æði.
En meðan ég man, hann er samt æði! haha.. úff hérna eru nokkrar nettar myndir af drengnum sem hefur einmitt átt að baki farsælan feril sem erótísk fyrirsæta;) haha




..haha þetta tengist sennilega erótíska-ferlinum;) haha


En greyið er ágætt í fötum líka;) haha

En ég fór að velta laginu, Believe fyrir mér, því það mynti mig SVO á eitthvað lag! ..og hér er það, ótrúlega líkt í byrjun - náttúrulega kannski ekki viðerindið ..en



Hér er svo lagið ... þau eru ótrúlega lík finnst mér á köflum...

..og svo er hér lagið sem hann tók fyrir hönd Rússland árið 2006:) - Never let you go :)


En mér fannst Daninn líka krútt sko ;) haha ekki neitt sigurlag þar á ferð..en Danir eru bara svo sætir;)

..guð frekar sætur;) hehe ..við erum að tala um að hann ætlaði sér að verða Lögga;)



Veit samt ekki hvað mér finnst í raun besta lag keppninnar í ár..þarf að melta þetta;)
Við stóðum okkur vel bara og getum verið sátt, allavega:)

..ohh eftir að við Sólrún höfðum Júróast - og kúffað í okkur óhollustu tókum við æðislegann og eftirminnilegan hjólreiðartúr;)
Hann einkenndist af:
- haha mikilum efa í byrjunn haha
- Erfiðu gömlu hjóli haha
- Snúið við
- Hjólinu hans Snæþórs stolið ;)
- ..og kókómjólk;)
- Hjólað af stað aftur, ögn hraðar haha;)
- Hjólað og hjólað
- Spjallað mikið og sungið, aðeins of hátt - misgóð Eurovisionlög..haha
- Legið í grasinu
- horfðum á himinninn
- kókómjólkin drukkin
- fuglasöngur
- hlátur
- og bara æði;)

Já .. en þarf að vakna snemma;* Eða 9 haha;)
...það er hópreiðtúr á morgun klukkan 11;) Fæ gæðing í Hellulandi :) ekki slæmt;)
...ef veðrið verður jafn æðislegt og í dag þá verður hann æði :D

En já svona að lokum, búin náttúrulega að fá út úr prófunum..fyrir þá forvitnu þá var ég með 9,3 í meðaleinkun - nokkuð sátt :) Fjórar 10-ur ;) og fínheit..

Aðlokum fannst mér Frakkland nú bara krúttlegt haha;) Samt ekkert grín hversu klúðursleg myndartakan var á laginu í keppninni sjálfri..en lagið gott;)


En farin að hugsa um að fara að kúra...
Gúdderí næght;*
Dóran sem er á leiðinni til Rússlands hehe ;O :D

..me like;)

22. maí 2008 klukkan 12:54
Sumarfrí og sæla;)
..hálf skrítið að vera ekki núna plönuð 24/24  ! En það gæti vanist ;P

Wáá ég er að elska David Cook;P Hann var svo lang flottastur í American Idol, þó að hann hafi nú kannski staðið sig betur en hann gerði þarna í lokaþættinum í gær..en hann rústað þessu samt, sem segir allt sem segja þarf.. úff hann er svo flottur;)

Mér finnst t.d. hérna Billie Jean æði hjá honum;*


En hitti hana Svölu mína á þriðjudagskveldið, allt  of langt síðan síðast!
..enda erum við ákveðnar í því að vera voðalega duglegar í sumar! Ekki neitt kjaftæði;P

Sólrún mín er núna upptekin við að vera óglatt í  Vestmanneyjum eftir víst ógleymanlega ferð þangað með Herjólfi í gær .. sjóveiki og tilheyrandi... ;S En skólaferðalög klikka samt seint, þrátt fyrir smá sjóveiki;* Hugsa til ykkar náttúrlega, og vona að þið skemmtið ykkur æææðislega:)

Núna er ég a spá í því að fara að vera dugleg..
..reyna kannski að taka til?
..er að horfa á Nágranna - svona til að halda Þóru inn í söguþræðinum..haha;)
..fara svo kannski út að hreyfa mig eitthvað!
..og svo er það bara hestbak, spurning hvenær samt.

..ég er alltof skipulögð til að vera að meika það að vita ekki nákvæmlega hvenær ég er að fara á hestbak..dagurinn fer bara í það að bíða haha .. verð að finna lausn á þessu;)

..guuð Lokuð Rás - er að missa af hverju sjokkerandi í Nágrönum!
Farin að digital Ísland til;)

Farvel;*

Dóra&David Cook - lovely;)

4 down, 2 to go :)

14. maí 2008 klukkan 12:56
Wá ég er haha svo upptekin af því að ég sé að verða komin í sumarfrí að ég ætlaði að skíra þetta blogg það sama og hitt ,, alt að hafast" svo bara hey, held að hitt hafi heitið þetta líka..enda glæst heiti ;S
..játs, sem sagt ég sit sveitt inni við "prófalestur" á meðan sólin skýn úti... yndislegt eða hvað?

Mér gekk nú bara svona líka þokkalega í ísl 202 og stæ 122 ..svo þar er ekki neitt fall á ferð.

Helstu fréttir, gerði ein af mínum bestu kaupum í gær:) haha, ég sat auðvitað sveitt upp í herbergi við prófalestur - passlega taugveikluð þegar ég bara fattaði að hugsanlega væri Kristófer niðrí sjoppu í sínu glæsta stuði;) Snilld að versla við hann þegar allt á að seljast í sjoppunni ;) Mæli með því að allir kæmu á Lauga næsta vetur, þó það væri ekki bara til að prófa það..en allavega;)

Ég keypti fullan kassa af bugles-pkum;)
- allavega 2 róló:)
- 2 sleikjóa
- 3 lakkrispoka - eða svona dæmi;)
- 2 tiggjópakka
...og hvað meir?

Fyrir þessar gersemar borgaði ég um 530 kr;) Geri aðrir betur... haha
...þá allavega á ég nóg nammi ef ég fell í öllum prófunum!

Annars hef ég verið að forðast offitu-æðið sem fylgir sjálfsvorkuninni við að vera í prófum. Nú er Dóra orðin skokkari, og hef verið að skokka 5 km á dag, (síðstu 3 daga haha) sem ég er nokkuð sátt með á miðan við íþróttaferil minn hehe...mmm
Það sem ég uppsker af þessu eru blöðrur á fæturna... :D

Þrátt fyir endalausa gleði yfir því að vera að komast í sumarfrí er ekki laust við söknuð. Þegar upp er staðið verð ég að viðurkenna að mér líður bara mjög vel hérna á Laugum og vitandi hverjir verða t.d. ekki á næsta ári, er svolítið leiðinlegt...
Ég ætla sem sagt held ég bara, formlega að vera hérna annað ár og klára jafnvel á þrem árum í heildina.. kemur allt í ljós hvernig það fer.

Lífið á Laugum er gott;)
Hér koma nokkrar myndir úr klassískum tima;) haha


Litli engillinn ég;)


Á Laugum er erfitt að rekast á Lúða haha..eins og þið sjáið;)


Einbeitt í tíma náttúrulega - tattúú sem ég teiknaði á Svavar haha - glæst :)


já - ég er alltaf glæsileg ..

----------------

Hér er svo venjulegur dagur á Laugum..hehe


hehe já...Þóra hefur aameiiising hár sko!!


Já, á Laugum höfum við haft tækifæri til þess að rækta persónuleika okkar og getað því orðið mun eðlilegri með hverjum degi .. !

Ég þarf samt vonandi ekki að taka það fram að þessi er tekin fyrir áramót, en þá vorum við ekki búnar að ná að tileinka okkur Laugasiði nógu vel haha;)

Farin að læra...og svo á hestbak, og svo að læra meira... og svo náttúrlega American next top model PEOPLE;) Enginn heilvita maður missir af því;)


uppáhaldið mitt











Sumarið er tíminn;**

Farvel;*















p.s. heilluðu þessar myndir þig ekki Sólrún hehe? ;)

p.s.s. Svala mín er ekki hæg að panta þig bara um helgina haha?;* Verðum að fara að hittast!!!

..allt að hafast;)

09. maí 2008 klukkan 09:53
Trúi ekki að það sé loksins að koma sumarfrí!!
Kannsk samt sem betur fer, er orðinn allveg lærdóms-orkulaus, eitthvað sem sennilega allir kannast við þegar fer að vora!
Svo helgin hjá mér fer í reyna að nýta þá litlu orku sem er eftir í prófalestur ;S

Love is a many splendored thing, Love lifts us up where we belong

16. apríl tekur svo sumarfríið við Hlæjandi

Annars er bara búið að vera nóg að gera! ;)

Er að spá í að skella inn nokkrum myndum, er samt búin að vera voðalega léleg í því að taka myndir bara síðan eftir jól...kippi því í lag í sumar!

 All you need is Love



Hérna koma nokkrar glæstar myndir síðan Þorkell fermdist;**

Júlli og the servétta;)


töffararni..hehe;)

Þráinn og Stína sys pabba;)

Ferminarbarnið sjálft, meiri töffarinn;)

Ég og Júlli minn:)

Þorkell dansaði svo náttúrlega með dömunni sinni;) Voru æði!!! ;D

Ég gáfuleg að vanda;) haha

Sætir ;) hehe


Allur hópurinn;)

Erum við að tala um hættulega mikið krútt! ;)



hehe krútt;)


Þorkell að tja sig með tilþrifum;) giska á fermingarræðuna ;)


Afi Höski minn;**

Svo átti ég afmæli um daginn, 3 ma;)

The only way of loving me baby, Is to pay a lovely fee

Við Sólrún fórum á Ak saman á föstudaginn og höfðum það smá kósý;)
Á laugardaginn, fóru við Ásta á hestbak og fínerí;) Svo fór ég í Víðigerði og lagði húsið þar undir mig;) Bakaði kökurog míní pitzzur og bauð svo telpum nokkrum í smá stelpu-partý...;) Mikið spjallað, mikið hlegið;)
Horfðum svo á Notebook. Þegar mér var svo farið að verkja í magann af nammiáti þá var þetta orðið ekta ;S hehe;)

A girl has got to eat

Já ég ætla svo að taka verklegahlutann í bílprófinu eftir prófin bara, fannst eginlega óþarfi að vera að gera allt í einu, eins og svo oft áður.. ! Svo verð kominn með bílpróf sennilega í lok mánaðarins;)

Some people wanna fill the world with silly Love songs



Æ-i þæreru svo sætar;** elska þær ;)


Glæstar míní pitzzur;)


Ásta mín;*


..litla afmælisbarnið ég;)




Ásta var náttúrulega í stöðugu sms-sambandi við Einar sinn.. ;) hehe


Sólrún mín, alltaf svo sæt og fín ... ;) :D


Annars er ég bara búin að vera að ríða út á fullu, þoli ekki hvað veðrið er misjafnt þessa daganna! Sól og æði í kannski 2-3 daga og svo bara rigning og snjókoma! Núna er t.d. rigning og snjókoma.. ;S

Love makes us act like we are fools, Throw our lives away, For one happy day


Stroka mín er hálfgerður gullmoli og held að þetta egi bara allt eftir að ganga vel þegar ég verð búin að ná að slípa hana betur;) Sumarið verður gott :D

We could be heroes, Forever and ever





Farvel ;**



 We should be lovers, And that's a fact
 Though nothing will keep us together
We could steal time, Just for one day

Megan Fox, greinilega að gera góða hluti;)

26. apríl 2008 klukkan 19:38
Tíminn líður...svo..hratt!
Það er eginlega bara kominn smá sumarfílingur í mig og get ekki hætt að hugsa um að skólinn sé að verða búinn, vottar fyrir námsleiða, en hugsunin um að reyna bara að klára þetta af er sem betur fer sterkari, enþá ;) Búið að vera ógeðslega mikið að gera, en í vikunni var verkefnadrifið nám sem endaði með opnum degi í skólanum og fínheitum. Um síðustu helgi fór ég með Ástu og Einari, turtildúfum í mikla svaðilför um Mývatnssveit;) Bara nokkuð gaman, mikið spjallað og hlegið náttúrulega;) Ég tel mig líka hafa sýnt þeim bara svakalega tilitsemi hehe líka, en förum ekki nánar út í það;) Á inni hjá Einari bara haha.

Gisti hjá gömlu í gær, alltaf jafn æðislegt ;***
Svo er ég bara búin að eiga voðalega góðan dag í dag :) Gömlu skutluðu mér heim í morgun þegar þau fóru á kirkjukórsæfingu en þá gerðist ég afar dugleg og tók til og bakaði kryddbrauð og svaka, bounty-köku;) já, Þóra mmm;)
Svo bauð ég kellunum Ástu og Guðrúnu skvísu í heimsókn;)  ohh, Ásta er æði greyið.. ;**
..er svo að fara að passa í Grímshúsum :)


En krakkar mínir Megan Fox hefur verið kosin kynþokkafyllsta kona heims í árlegri kosningu FHM tímaritsins á þeim 100 kynþokkafyllstu.  Jájá þetta er áhugavert!! :O Svo finnst ykkur þessum blessuðu stelpum vera rétt raðað niður.. hehe..? Einhver sem ykkur finnst að ætti að vera ofar eða öfugt. Skil ómögulega samt hvernig það er hægt að skella þessum gellum niður í svona lista, enda er hann alltaf að breytast;) En passlega gaman af þessu.. ;)

Hér koma svo myndir af þeim sem eru inn í dag;) svona tila ð þið getið skemmt ykkur við að bera þær saman... jebberíbebb :)

1. Megan Fox



2. Jessica Alba



3. Keeley Hazell


4. Elisha Cuthbert



5. Hayden Panettiere



6. Scarlett Johansson


7. Cheryl Cole



8. Hilary Duff


9. Angelina Jolie



10. Keira Knightley



11. Rihanna



12. Kate Beckinsale



13. Jessica Biel


14. Eva Longoria



15. Alessandra Ambrosio



16. Rachel Bilson



17. Beyonce Knowles



18. Gemma Atkinson



19. Jennifer Love Hewitt



20. Christina Aguilera



Jáhá, ég verð að segja að ég er þó ekki allveg sammála þessum lista... finnst t.d. margar fallegri en Gemma Atkinsonen, en hér geti þið séð fleiri konur sem jafnvel eiga heima þarna:)
http://www.topwomen.org/

:D

11. apríl 2008 klukkan 13:48

Þeir þrír hlutir sem hafa staðið upp úr hjá mér síðustu vikur;

1
.

Er orðinn merkur hestaeigandi, ótrúlegt en satt!!
þetta er hún sæta,sæta,sæta Stroka mín sem afi Höski kallinn reddaði mér..nú verður bara spennandi og gaman að sjá hvernig þetta á allt eftir að ganga. Hún er allavega lítill gullmoli.. spurning hvort ég sé það svo við náum saman .. hmm haha;)






Á ferð og flugi - afi myndasmiður tók þessa haha....

2.

Ótrúlegt en satt þá er ég á leiðinni á James Blunt tónleikana með henni Sólrúnu minni 12.júní næstkomandi, þegar kallinn kemur til Íslands! er ekki allveg búin að fatta þetta enda gerðist þetta hratt. Við erum allavega komnar með miða, fjórða röð fremst - sætin á endanum við hliðina á A + en við erum í A, gæti þetta verið betra?
ohh, þetta verður náttúrleaga geggjað, enda þó nokkur góð lög sem JB hefur gert!! Líka bara stemmingin.. jejej!;)



3.

 ...og svo að lokum, úff - náði bóklegabílprófinu með 1 villu í b hluta ! Mjög létt,mjög létt!! Þetta eru náttúrlega ekki eðlilega ömurleg próf... og stressið bætir þau ekki upp! En já þetta er yfirstaðið :D !!!

..gott og blessað..þá er það bara verklega í mai!


Ætlaði bara að láta vita af mér;*


Mr. Snowball;)

14. mars 2008 klukkan 09:54

Erum við að tala um páksafrí eftir u.m.b. 3 klst! :)
Get einganveginn beðið...

Síðasta vika hjá mér hefur bara verið ótrúlega góð, held að þetta blogg fari bara í tja, einhverja upptalningu á því hvað á daga mína hefur drifið, er eitthvað svo skriftarheft at the moment... ;)

Föstudagurinn síðasti fór í Laugamót sem er haldið fyrir grunnskólana í kring en 6 skólar mættu í ár. Áður en maður vissi var skólinn fullur af krökkum og gellgjum inn á milli ef vel var að gáð...
Mótið gekk bara vel og Hafralækjarskóli endaði í 3 sæti, nokkuð glæst;)
Ég fann mig allveg í stúkunni við að hvetja hann til dáða, haha hallærislegar setningar eins og áfram Hafró, koma svo og eitthvað álíka voru mikið notaðar þennan dag. Mér hefur alltaf fundist orðið Hafró svo kjánalegt en það gleymdist næstum því í hita leiksins :) Allveg magnað, um miðjan dag var maður því orðinn illa hás.
Eftir að hafa svo horft á gellgjurnar dansa á diskótekinu um kveldið skutlaði  Þóra mér heim. Sólrún skokkaði svo yfir til mín og augnakonfektið Robbie Williams var tekinn fyrir. Á þessa mögnuðu tónleika með kallinum.

Laugardagurinn var líka bara ljúfur, leti, leti, leti...
Skruppum svo familíen upp í Kasthvamm - Guðmundur, því hann var sko á einhverju Snowcross dæmi upp í Mývatnssveit, það er víst málið í dag.
Mikið spjallað og borðað;P Klikkar seint.

Sunnudagurinn var held ég svo bestur. Ákvað að vera svakalega dugleg og lét klukkuna hringja klukkan 09:00 og dreif mig út að skokka í 40 mín, voðalega þægilegt. Svo var það sturta og ýmyndaður lærdómur fram yfir hádegi.
Svo fórum við Sólrún út á eingi og heimsóktum elskurnar mínar:) Er orðin alltof hrifin held ég af folaldinu mínu, þvílík dúlla haha, það verður dekrað um páskana, ei spurning.
Svo tókum við Sólrún nett Júró þema á þetta horfðum á gamla keppnir og spjölluðum, ómissandi bara haha:)
Svo var borðum við náttúrlega alltof mikið í kaffinu, vöfflur og jammirí jamm ;) svo drifum okkur út í göngutúr sem endaði í hesthúsinu í Hvoli:)
Haha heimferðin var svo frábær, því þá varð Mr. Snowball til :D haha þið eigið eflaust eftir að sjá myndir af honum, eða ættingjum hans ef Sólrún er búin að kála honum :O ... hann er allavega afar gáfuleg persóna ;)
...var ég búin að segja ykkur hversu mikið ég elska Sólrúnu haha? ;******
.........allavega búin að því núna!

Mánudagurinn..hvað gerðum við þá Þóra? já, Þóra gerðist veik, ég fór út að skokka, og svo upp í hesthús, og svo aftur að skokka :) Fínt, fínt.. Hvöt öll að koma til! Svo minnir mig að letin hafi bara verið þema kvöldsins :O Allavega líkleg fyrir valinu. Já, Arna kom til mín og við vorum með A.Idol partý;) Það er orðin hefð, bara kósý ;*

Þriðjudagurinn: Tekinn einn góður stjórnarfundur haha og svo skutlaði Anna Signý elskan mér heim og ég náði í peningarveskið mitt, ljúft! Haha.
Svo brunaði ég með Þóru driver á Ak þar sem við skelltum okkur náttúrlega á bláu könnuna, paniní-ið þar er svo gott! Svo pikkuðu við Ástu elskuna upp og skelltum okkur á Step up 2, georges! Tókum því svo rólega á leiðinni heim, ömurlegt veður ;S

Miðvikudagurinn var svo bara tja smá lærdómur, og svo Sex in the city:) Ingibjörg náði svo í mig rúmlega 18 og ég passaði grislingana fyrir hana og Hallgrím:)

Fimmtudagurinn var tekin með trompi á Ak city.
Þemað var að skila Sirrý af okkur, stelpan tók sér bara frí í dag og fór í páskafrí. Fórum á bláu könnuna, haha skrítið?  .. en Anna Signý hafði aldrei farið þangað áður, sjokkerandi en satt! Stelpan átti gjafabréf þar svo það var súkkulaðikökur og marenskökur á línuna, nema sódavatn og haha paníní hjá mér, var eginlega hötuð þarna í nokkrar sekúndur..en lifi enn.
Eftir að hafa skilað Sirrý af okkur var tekið örlítið búðarráp. Ég náði að plata Þóru til þess að kaupa sér 4 boli, húfu og eitthvað dóterí ;) haha óje...ég meina einhver þurfti að eyða og þar sem ég er að reyna að tja, eigum við að kalla það að spara, þá bara varð hún fórnalambið :)
Sáum svo framan í Dagrúnu skvísu, verðandi mömmu;* og Sigrúnu. Gaman að sjá þær náttúrlega:)
Svo skutlaði Anna Signý mér til Ástu minnar;* Við höfðum það svo gott, pöntuðum okkur svo pizzu hjá JónSpretti og kósýheit:) Haha svo var tjékkuðum við á aðal mönnunum á vistinni. Einar var náttúrlega fyrstur enda höfðum við keypt þennan fína bland í poka handa kallinum (Ásta kallaði þetta eitthvað annað...man ei hvað.. haha) enda var greyið hálf veikt.
Svo gerðum við heiðarlega tilraun til þess að banka hjá Brandi haha, ætluðum að heilsa upp á þann merkismann, en hann vildi ekki neitt með okkur hafa, sennilega ekki verið heima...tja..Svo Helgi varð næstur fyrir valinu:) Komust að því að sá drengur drekkur appelsín(hint Þóra, hint), á risa flatská og fullan flakkara af myndum(hint, aftur Þóra, hint;P ) og finnst leiðinlegt að taka til( dem it, Þóra þarna fór það) og haha er ekki neitt mikið fyrir það að taka skólabækurnar úr plastinu..enda segist hann ætla að fara í VMA næsta haust til þess að þurfa ekki að læra neitt, er sem sagt í MA.
Jáhá, svo kíktum við á Sigga, og duttum í lukkupottinn þar sem 3 folar voru í heimsókn. Herbergisfélagi Sigga er ekki heldur neitt mikið fyrir að taka til, og tja...já ..wáá .. okey! Stoppuðum ekki það lengi haha... en alltaf gaman að sjá Sigga náttúrlega;*

Svo var rúnturinn tekinn, og sá svo framan í Kristjönu, hefði nú verið til í að sjá meira framn í þá stúlku! ;*
Svo fórum við á rúntinn með Herði og Svenna:)
Endaði svo að lokum heima á Laugum, góður dagur bara;*

...haha nú ættu að vera svona 2 klukkutímar eða eitthvað í páskafríið, haha búin að dúlla mér við þetta blogg hérna í vst.

Planið í dag er svo bara lítið en veit að ég er allavega að fara í ö2 í kvöld, veit svo ekki hvað ég geri eftir það. Svo er það ö2 aftur klukkan 10 á morgun og á sunnudaginn ætla ég að reyna að komast suður :) Fer þá og sé gripinn sem ég var að kaupa mér og hef það kósý með afa kallinum;*

Hafið það gott litlu páskaungarnir mínir;*
Farvel... :)

Stoltur hestaeigandi;)

06. mars 2008 klukkan 10:03

ohh, síðasta helgi var frábær;* Hún fór í hestastúss og góðar stundir með Ástu;*
Föstudagurinn var fljótur að líða, byrjaði hann snemma með því að fara með Örnu Kristínu upp í leikskóla þar sem við vorum fram að hádegi. Erum að vinna verkefni í uppeldisfræði og leggjum áherslur á barnateikningar. Eftir það lét ég mig hverfa og fór á reiðnámskeið í Torfunesi og var þar fram að kvöldi.
Svo fór ég í Grímshús um kvöldið og hafði það kósý og þægilegt með Ingibjörgu.


Rúsínan mín Edda Hrönn;*

Vaknaði svo náttúrlega snemma á laugardagsmorgunin, fersk og hress en Ásta kom og náði í mig og við héldum upp í Mývatnssveit á Mývatn open - Ískappreiðar en við vorum beðnar um að vinna þar.
Haha það gekk bara nokkuð vel... er það ekki Ásta haha? Sérstakleg við verðlaunaafhendinguna;) hehe.


Eftir að hafa svo troðið í okkur kökur á kökuhlaðborðinu í Seli brunuðum við svo heim til mín og kíktum þar á skísurnar mínar, Dögunni og Hnotu.  Fór svo heim með Ástu, borðuðum þar og græjuðum okkur fyrir kvöldið. Svo lá leiðin aðeins á Lauga, þar sem ljósastaur náði að ögra mér full mikið .. haha eða hvað? Svo héldum við til Húsavíkur. Skelltum okkur  þar á merka rúnthringinn með Stebba og Einari. Alltof mikið hlegið fannst mér haha. Sáum svo bregða fyrir hnökkunum, Ella B, Herði og Hilmari. Fínasta kvöld, fínasta kvöld.

Sunnudagurinn fór svo í ýmyndaðan lærdóm og reiðnámskeið:)

Hér koma svo myndir frá Laugardeginum.
















Dögun;*










...En toppur helgarinn var þegar ég keypti mér dökk-jarpa meri! Er ekki enþá búin að átta mig á því...vegna þess að afi Höski fann hana fyrir mig fyrir sunnan, en hann var búin að vera með hana í þjálfun fyrir mann sem vildi svo selja hana. Hann því hringdi og bauð okkur að kaupa hana en í rauninni þurftum við að gera það bara nánast strax því hún væri að taka svo miklum framförum, krúttið!! að  ef hún myndi halda svona áfram myndi hún hækka svakalega í verði! Svo við skelltum okkur á hana, enda þekkir afi mig það vel. Hún er undan Ófeigi frá Þorláksstöðum sem mun eflaust gera það gott á næsta Landsmóti hef ég heyrt. Ég fer suður um þar næstu helgi til afa og hann ætlar að hjálpa mér með hana þar. Svo kemur hún bara norður sem allra fyrst eftir það!! Ótrúlegt!!
Held að ég eigi eftir að fara bara að gráta þegar ég sé hana haha!! Hlakka svo til!
Merin heitir Stroka haha;) Og ég held að ég láti það nú bara halda sér, finnst leiðinlegt að vera að skipta um nafn á rúmlega 7v meri.
Wííí... lífið getur verið svo spennandi:)


En yfir í annað... :)

Á mánudagskvöldið bauð ég Sólrúnu og Sigrúnu að koma til mín;* Fórum svo í Laugabíó á einhverja svaka mynd og gaman;) Kósýkvöld svo bara á eftir:)

..At the moment erum við Þóra svo í miklum pælingum..en er farin að læra...!

Látið ekki ,,Afþreingdar eiginkonur" haha framhjá ykkur fara í kvöld, stefnir í svaka þátt!!




Farvel;**

Hold fast...

Hold fast to dream
for if dreams die
life is a broken winged
bird that cannot fly.

Litla ég;)

  • Nafn: Halldóra Kristín Bjarnadóttir
  • Netfang: dorakb@hotmail.com
  • Atvinna: ..er aðalega bara á fullu í skólanum yfir vetrartímann
  • Hjúskaparstaða: ...á lausu:P

Leit